Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. júlí 2014 14:41
Magnús Már Einarsson
Patrice Evra til Juventus (Staðfest)
Patrice Evra.
Patrice Evra.
Mynd: Getty Images
Juventus hefur keypt franska vinstri bakvörðinn Patrice Evra frá Manchester United.

Evra gerði nýjan samning við Manchester United í vor en síðan þá hefur félagið keypt Luke Shaw frá Southampton.

Hinn 33 ára gamli Evra hefur í kjölfarið gengið til liðs við ítölsku meistarana.

,,Allir hjá félaginu vilja þakka honum fyrir frábæra þjónustu í mörg ár," sagði í yfirlýsingu frá Manchester United.

Evra hefur leikið með Manchester United síðan árið 2006 en hann kom til félagsins frá Monaco.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner