Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. júlí 2014 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-kvenna: Erna skoraði tvö og fékk rautt í sigri Selfyssinga
Erna Guðjónsdóttir gerði tvö mörk í kvöld og fékk svo rautt. Hún var allt í öllu.
Erna Guðjónsdóttir gerði tvö mörk í kvöld og fékk svo rautt. Hún var allt í öllu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 0 - 3 Selfoss
0-1 Celestine Boureille ('52 )
0-2 Erna Guðjónsdóttir ('55 )
0-3 Erna Guðjónsdóttir ('71 )
Rautt spjald: Erna Guðjónsdóttir ('90, Selfoss)

Selfoss fór létt með ÍBV í kvöld en liðið sigraði með þremur mörkum gegn engu á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Celestine Boureille kom Selfyssingum yfir í byrjun síðari hálfleiks áður en Erna Guðjónsdóttir bætti við öðru stuttu seinna.

Erna bætti við öðru marki sínu og þriðja marki leiksins þegar um það bil tuttugu mínútur voru eftir.

Hún fékk þá að líta rauða spjaldið undir lok leiks en hún fékk þá að líta sitt annað gula spjald.

Lokatölur 0-3 Selfyssingum í vil sem eru í fjórða sæti með 19 stig á meðan ÍBV er í sjöunda sæti með 12 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner