Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. júlí 2014 13:15
Magnús Már Einarsson
Þórsarar semja ekki við Ungverjann - Skoða liðsstyrk
Úr leik Þórs og Keflavíkur í gær.
Úr leik Þórs og Keflavíkur í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þórsarar ætla ekki að semja við ungverska varnarmanninn Norberg Kardos sem hefur verið til reynslu hjá félaginu að undanförnu.

Kardos er 25 ára gamall en hann æfði með Þórsurum í rúma viku.

Kardos náði ekki að heilla menn hjá Þór en Akureyringar eru ennþá með augun opin fyrir liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.

,,Við erum að þreifa fyrir okkur. Það er ekkert stress í gangi en við erum aðeins að skoða markaðinn, hvort það sé eitthvað spennandi þarna úti," sagði Magnús Eggertsson formaður leikmannaráðs Þórs við Fótbolta.net í dag.
Athugasemdir
banner
banner