Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. júlí 2015 09:35
Magnús Már Einarsson
Aleksandar Mitrovic til Newcastle (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur keypt sóknarmanninn Aleksandar Mitrovic frá Anderlecht á 13 milljónir punda.

Þessi tvítugi Serbi skrifaði undir fimm ára samning við Newcastle.

„Þetta er félag með mjög mikla sögu og stuðningsmennirnir eiga stóran þátt í því. Það verður pressa hér en ég kann vel við það," sagði Mitrovic.

„Ég veit um fræga leikmenn sem hafa spilað með Newcastle United eins og Alan Shearer sem er hetja í mínum augum. Ég vona að ég geti spilað eins og hann."

Mitrovic er annar leikmaðurinn sem Steve McClaren kaupir til Newcastle í sumar en áður hafði Georginio Wijnaldum miðjumaður PSV komið á 14,5 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner