Spænskir og grískir fjölmiðlar segja að Alfreð Finnbogason, framherji Real Sociedad, sé á leið til PAOK á láni.
Alfreð hefur verið orðaður við gríska félagið í sumar og samkvæmt fréttum gæti hann gengið til liðs við félagið í vikunni.
Alfreð hefur verið orðaður við gríska félagið í sumar og samkvæmt fréttum gæti hann gengið til liðs við félagið í vikunni.
Hinn 26 ára gamli Alfreð hefur undanfarna daga verið með Sociedad í æfingabúðum í Skotlandi.
Alfreð náði sér ekki á strik á sínu fyrsta tímabili á Spáni með Sociedad en hann kom til félagsins fyrir ári síðan eftir að hafa verið markakóngur í hollensku úrvalsdeildinni með Heerenveen tímabilið 2013/2014.
PAOK endaði í 5. sæti í grísku deildinni á síðasta tímabili en þjálfari liðsins er Igor Tudor fyrrum leikmaður Juventus.
Athugasemdir