Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. júlí 2015 14:25
Magnús Már Einarsson
Balotelli biður stuðningsmenn Liverpool að styðja Sterling
Sterling er farinn til City.
Sterling er farinn til City.
Mynd: Getty Images
„Vel gert @Sterling31! Besta svarið. haltu svona áfram," sagði Mario Balotelli framherji Liverpool á Twitter í dag.

Balotelli skrifaði skilaboðin eftir að Raheem Sterling skoraði eftir rúmar tvær mínútur í sínum fyrsta leik með Manchester City.

Margir stuðningsmenn Liverpool voru óáægðir með hegðun Sterling þegar hann reyndi að fara frá félaginu í sumar en Manchester City keypti hann á endanum í síðustu viku.

Líklegt er að margir stuðningsmenn Liverpool séu ekki sáttir með skilaboð Balotelli en hann peppaði Sterling á Twitter í dag.

„Stuðningsmenn Liverpool eru ótrúlegir en ég vona að @sterling31 nái að spila upp á sitt besta því hann verðskuldar það. Hann er góður og ungur náungi með hæfileika," sagði Balotelli einnig.

„Styðjið hann eins og þið gerðð alltaf. Hann gaf allt sitt fyrir félagið og ég virði hann. Þess vegna finnst mér leiðinlegt að sjá þetta. YNWA, Liverpool er ALLTAF fjölskylda."
Athugasemdir
banner
banner