Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 21. júlí 2015 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Cambiasso verður ekki áfram hjá Leicester
Esteban Cambiasso
Esteban Cambiasso
Mynd: Getty Images
Argentíski miðjumaðurinn, Esteban Cambiasso, hefur ákveðið að hafna tilboði Leicester og verður því ekki áfram hjá félaginu.

Hinn 34 ára gamli Cambiasso gerði eins árs samning við Leicester fyrir síðasta tímabil.

Hann átti stóran þátt í að bjarga Leicester frá falli á síðasta tímabili en hefur nú ákveðið að yfirgefa félagið.

"Ég hef ákveðið að endurnýja ekki samning minn við Leicester," sagði Cambiasso.

"Ég tók þessa ákvörðun aðeins sólarhring eftir að hafa fengið tilboð frá Leicester vegna þess að ég vil gefa félaginu eins mikinn tíma og mögulegt er til að finna leikmann í minn stað."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner