Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. júlí 2015 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Gerrard: Suarez sennilega sá besti sem ég hef spilað með
Steven Gerrard og Luis Suarez
Steven Gerrard og Luis Suarez
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard segir að sinn fyrrum liðsfélagi hjá Liverpool, Luis Suarez, sé sennilega sá besti sem hann hefur spilað með á ferlinum.

"Ég held að engum hlakki til að spila á móti Luis Suarez, því hann er með mikla hæfileika og mjög hættulegur leikmaður," sagði Gerrard.

"Hann var magnaður liðsfélagi og sennilega sá besti sem ég hef spilað með."

"Hann er frábær náungi utan vallar og mikill fjölskyldumaður. Við höfum haldið sambandi og staðið með hvor öðrum í gegnum súrt og sætt."

Þeir félagar munu mætast sem andstæðingar í nótt þegar að núverandi lið þeirra Los Angeles Galaxy og Barcelona mætast í æfingaleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner