Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. júlí 2015 16:48
Magnús Már Einarsson
Indriði Áki í Fram?
Indriði Áki Þorláksson.
Indriði Áki Þorláksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Indriði Áki Þorláksson gæti verið á leið í Fram en hann mun æfa með liðinu í kvöld.

Indriði Áki fór frá FH til Keflavíkur á láni í vor en hann hefur ekki komið við sögu hjá Keflavík síðan í lok maí.

„Hann er að æfa með okkur núna en það er ekkert orðið staðfest," sagði Pétur Pétursson þjálfari Fram við Fótbolta.net.

Hinn tvítugi Indriði Áki spilaði sex leiki með Keflavík í maí en hann kom til FH frá Val fyrir einu ári síðan.

Indriði skoraði 9 mörk í 29 deildar og bikarleikjum með Val á ferli sínum þar.

Framarar eru í leit að frekari liðsstyrk en að sögn Péturs gæti eitthvað gerst í þeim málum á næstunni.
Athugasemdir
banner