Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. júlí 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Schweinsteiger: Man Utd getur unnið titla
Bastian Schweinsteiger.
Bastian Schweinsteiger.
Mynd: Getty Images
Bastian Schweinsteiger, nýr leikmaður Manchester United, er bjartsýnn á að félagið geti unnið titla á komandi tímabili.

Schweinsteiger gekk til liðs við Manchester United í síðustu viku og hann hefur verið sáttur með gæðin á fyrstu æfingunum.

„Gæðin eru mjög mikil. Ég er viss um að það er hægt að vinna titla með þessu liði. Ég get sagt það strax eftir eina viku," sagði Schweinsteiger.

„Við erum með góða vörn og við erum með gæða leikmenn sem geta gert gæfumuninn í jöfnum leikjum."

„Það eru líka leikmenn sem koma síðar inn í hópinn og ég tel að þetta lið eigi mikla möguleika."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner