Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. júlí 2015 16:40
Elvar Geir Magnússon
Stefán Ragnar ekki í myndinni hjá Hemma Hreiðars
Stefán Ragnar tekur innkast.
Stefán Ragnar tekur innkast.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Stefán Ragnar Guðlaugsson var ekki í leikmannahópi Fylkis sem vann 1-0 útisigur gegn Breiðabliki í gær.

„Ég er bara að skoða mín mál eftir að ég fékk að vita það frá nýjum þjálfara að ég væri ekki inni í myndinni," segir Stefán sem gæti því farið annað í glugganum. Hann vill helst vera áfram í Pepsi-deildinni.

Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun Fylkis og hefur ákveðið að stóla á aðra leikmenn í varnarleiknum. Stefán segir þó ekki útilokað að hann verði áfram í Árbænum og berjist fyrir því að komast inn í myndina hjá Hermanni.

„Það er alls ekki útilokað en mér líður mjög vel hjá félaginu."

Stefán Ragnar er uppalinn hjá Selfossi en var í herbúðum Vals sumarið 2013. Hann gekk svo í raðir Fylkis fyrir tímabilið 2014.

Hann lék 20 leiki með Árbæjarliðinu í Pepsi-deildinni í fyrra og hafði leikið 9 leiki í sumar þegar Hermann tók við þjálfun liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner