Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. ágúst 2014 19:16
Ívan Guðjón Baldursson
Balotelli á leið í læknisskoðun - Líklega með gegn Man City
Allt útlit er fyrir því að Balotelli mæti sínu gamla félagi á mánudaginn.
Allt útlit er fyrir því að Balotelli mæti sínu gamla félagi á mánudaginn.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli fer í læknisskoðun hjá Liverpool á morgun, föstudag, og ætti því að vera klár í slaginn þegar liðið heimsækir ríkjandi meistara Manchester City á mánudaginn.

Balotelli mun þá líklega mynda áhugavert sóknarteymi með Daniel Sturridge sem munu eflaust njóta hjálpar frá hinum knáu Raheem Sterling og Philippe Coutinho.

Sky Sports greinir frá þessu í kvöld þar sem kaupverðið er talið vera um 16 milljónir punda.

Balotelli var orðaður við Arsenal fyrr í sumar en þá var kaupverðið talið nema rúmlega 30 milljónum punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner