Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. ágúst 2014 12:07
Elvar Geir Magnússon
Di Maria fer fram á sölu frá Real Madrid
Angel Di Maria í leik með Argentínu.
Angel Di Maria í leik með Argentínu.
Mynd: Getty Images
Argentínski vængmaðurinn Angel Di Maria hefur tilkynnt Real Madrid að hann vilji yfirgefa spænska félagið.

Di Maria hefur verið orðaður við Manchester United en Louis van Gaal, stjóri enska félagsins, vill ólmur fá þennan 26 ára leikmann.

Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, staðfestir að Di Mara hafi hafnað tilboði um nýjan samning hjá Evrópumeisturunum.

Hann hefur staðfest að Di Maria hafi farið fram á sölu en ef hann verði áfram hjá félaginu þegar glugganum verði lokað verði það engin vandamál.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner