Ísland tekur á móti Dönum í kvöld í undankeppni HM kvenna 2015 og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli kl. 19:30. Mikilvægi leiksins er mikið fyrir báðar þjóðir en þær berjast um annað sæti í riðlinum sem getur gefið sæti í umspili fyrir úrslitakeppnina í Kanada.
Þetta er í fyrsta skiptið sem danska kvennalandsliðið leikur hér á landi en allir 8 leikirnir til þessa hafa farið fram á erlendri grundu. Íslenska liðið á eftir þrjá leiki í riðlinum, alla á heimavelli, en leikurinn við Dani er lykilleikur upp á framhaldið.

Glódís Perla Viggósdóttir miðvörður Stjörnunnar er leikfær og getur spilað með í kvöld. Hún hefur verið tæp vegna meiðsla en RÚV greinir frá því að hún sé tilbúinn í slaginn.
Hér má sjá rafræna leikskrá fyrir þennan leik
Athugasemdir