Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. ágúst 2014 09:00
Magnús Már Einarsson
KV spilar á aðalvelli KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV mun leika heimaleik sinn gegn KA á aðavelli KR á laugardag.

KV hefur í sumar spilað heimaleiki sína í 1. deildinni á gervigrasvellinum í Laugardal þar sem gervigrasvöllurinn í Vesturbæ uppfyllir ekki kröfur í leyfiskerfi KSÍ.

KV fékk þó undanþágu til að spila einn leik á gervigrasinu á dögunum auk þess sem liðið spilaði í Egilshöll í byrjun móts. Aðalvöllur KR er því fjórði mismunandi heimavöllur lðisins í sumar.

,,Á laugardaginn kl 14 tökum við á móti KA á aðalvellinum við Frostaskjól. Það gleður okkur mikið og við hvetjum Vesturbæinga til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs!," segir á Facebook síðu KV.

KV er í næstneðsta sæti í 1. deildinni, fjórum stigum frá öruggu sæti, en liðið þarf lífsnauðsynlega á stigum að halda.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner