Heimild: BBC
AC Milan hefur staðfest að Liverpool eigi í viðræðum um kaup á framherjanum Mario Balotelli.
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vill fá nýjan framherja í hópinn til að hjálpa til við að fylla skarð Luis Suarez sem fór til Barcelona á dögunum.
Balotelli hefur skorað 30 mörk í 54 leikjum síðan hann kom til AC Milan frá Manchester City í janúar í fyrra.

Balotelli gæti nú verið á leið aftur í enska boltann þar sem hann skoraði 30 mörk í 80 leikjum á tíma sínum hjá Manchester City.
AC Milan endaði í áttunda sæti á síðasta tímabili og náði ekki Evrópusæti en talið er að félagið sé tilbúið að hlusta á tilboð í Balotelli.
Athugasemdir