Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. ágúst 2014 18:31
Ívan Guðjón Baldursson
Van Persie byrjaður að æfa aftur
Það styttist í endurkomu Robin van Persie.
Það styttist í endurkomu Robin van Persie.
Mynd: Getty Images
Robin van Persie er byrjaður að æfa aftur með Manchester United og gæti spilað í sunnudagsleiknum gegn Sunderland.

Van Persie birti myndir af sér á samskiptamiðlinum Twitter og sagðist vera spenntur fyrir sunnudeginum.

Ljóst er að Rauðu djöflarnir þurfa alla þá hjálp sem fæst enda var sóknarleikur liðsins ekki upp á marga fiska er liðið tapaði fyrir Swansea á Old Trafford í fyrstu umferð.

Van Persie skoraði fjögur mörk undir stjórn Louis van Gaal á HM og vonast stuðningsmenn United að Hollendingarnir nái vel saman á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner