Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 21. ágúst 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Birmingham fær Jenkinson og Bramall á láni (Staðfest)
Carl Jenkinson.
Carl Jenkinson.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Birmingham, hefur fengið Carl Jenkinson og Cohen Bramall á láni frá Arsenal.

Jenkinson er hægri bakvörður sem var í láni hjá West Ham á þarsíðasta tímabili en þar varð hann fyrir alvarlegum hnémeiðslum.

Á síðasta tímabili kom hinn 25 ára gamli Jenkinson síðan lítið við sögu hjá Arsenal.

Bramall er 21 árs gamall vinstri bakvörður en hann hefur verið að brjótast inn í hópinn hjá aðalliði Arsenal.
Athugasemdir
banner