Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 21. ágúst 2017 10:20
Magnús Már Einarsson
Mbappe var rekinn af æfingu hjá Mónakó
Hvað verður um Mbappe?
Hvað verður um Mbappe?
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe var rekinn heim af æfingu hjá Mónakó í síðustu viku eftir rifrildi við liðsfélaga sinn Andrea Raggi. L'Equipe segir frá þessu í dag.

Mbappe gæti verið á leið til PSG áður en félagaskiptaglugginn lokar í næstu viku.

Mbappe og Raggi lentu í rifrildi á æfingu á þriðjudaginn og í kjölfarið var Mbappe sagt að yfirgefa æfinguna.

Mbappe gaf sig ekki og neitaði að fara af vellinum. Það varð til þess að leikmenn Mónakó færðu sig yfir á annan æfingavöll þar sem æfingin hélt áfram án Mbappe.

Á föstudaginn var Mbappe ekki í leikmannahópi Mónakó í 1-0 sigri á Metz en Leonardo Jardim, þjálfari liðsins, sagði eftir leik að leikmaðurinn væri ekki 100% klár í að spila.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner