Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður með sterkan 1-0 útisigur sinna manna gegn Keflavík í Pepsi-deildinni.
Sigurinn tryggði Fylkismönnum endanlega sæti í deildinni að ári, en Andrew Sousa skoraði eina mark leiksins í ansi vondu veðri.
Sigurinn tryggði Fylkismönnum endanlega sæti í deildinni að ári, en Andrew Sousa skoraði eina mark leiksins í ansi vondu veðri.
,,Þetta voru mjög erfiðar aðstæður í dag og erfitt að spila fótbolta, en í þessu er það oft liðið sem vinnur meira og langar þetta meira og er örlítið skipulagðara sem klárar leikinn, þannig var það í dag," sagði Ásmundur eftir leikinn.
,,Við erum allavega búnir að tryggja sæti okkar og það eru tveir leikir eftir. Það er ekkert annað í gangi hjá okkur en að reyna að ná í þau stig sem í boði eru, svo verðum við að sjá hversu langt það tekur okkur. Við erum í sjötta sæti í dag og viljum ekkert fara neðar, frekar að kíkja ofar."
Athugasemdir