Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, var ekki ánægður með dómgæsluna þegar liðið tapaði 4-2 fyrir FH í Pepsi-deildinni í dag. Framarar eru í fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir.
„Um tíma var eins og við værum að klóra okkur inn í þetta en við byrjuðum leikinn skelfilega og færum þeim tvö mörk á silfurfati. Það er erfitt á móti liði eins og FH sem er hörkusterkt," sagði Bjarni.
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmdi leikinn en Bjarni vildi í tvígang fá víti í leiknum.
„Hér er erfitt að dæma. Við áttum að fá víti í fyrri hálfleik þegar togað er í peysuna á Guðmundi Steini. Dómarinn horfir á það. Hér er erfitt að koma sem útilið og hingað er greinilega erfitt líka að koma sem dómari."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir