Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. september 2014 23:00
Alexander Freyr Tamimi
Leikmaður Roma spjaldaður fyrir að faðma ömmu sína
Florenzi rauk upp í stúku til að fagna.
Florenzi rauk upp í stúku til að fagna.
Mynd: Getty Images
Alessandro Florenzi, framherji Roma, var spjaldaður í dag fyrir að hlaupa upp í stúku og faðma 82 ára gamla ömmu sína eftir að hann skoraði í 2-0 sigri gegn Cagliari í Seríu A.

Florenzi lagði upp fyrra mark Roma á 10. mínútu þegar Mattia Destro skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf þess fyrrnefnda, og þremur mínútum síðar skoraði Florenzi svo sjálfur.

Hann fagnaði markinu með því að hlaupa upp í stúku og faðma ömmu sína, en þegar hann kom niður aftur fékk hann að líta gula spjaldið hjá dómaranum.

,,Hún er 82 ára og hafði aldrei komið á völlinn áður. Þetta mark er fyrir hana," sagði hinn 23 ára gamli Florenzi við Sky Sport Italia eftir leikinn.

,,Eftir að ég spilaði fyrir landsleikinn sagði hún mér að hún myndi koma á völlinn og að ég myndi skora. Það var fjölskylda mín sem fékk mig til að elska fótbolta, ég vildi deila gleði minni með þeim öllum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner