Stórkostlegt mark Stoppelkamp gegn gömlu félögunum
Moritz Stoppelkamp skoraði ótrúlegt mark í þýsku Bundesligunni um helgina þegar Paderborn vann 2-0 sigur gegn Hannover 96.
Stoppelkamp tók sig til og skoraði af 82 metra færi gegn sínum gömlu félögum og gulltryggði 2-0 sigur Paderborn, sem fór upp á topp deildarinnar á markatölu.
Markið kom alveg undir lok leiks. Markvörður Hannover fór upp í sókn í aukaspyrnu, sem barst svo út úr teignum frá Paderborn.
Þar tók Stoppelkamp sig til og þrumaði boltanum fram og smellhitti hann svona líka vel, boltinn endaði í netinu!

Athugasemdir