„Það gekk eiginlega alls ekki neitt upp hjá okkur í dag,“ sagði Ólafur Þórðarson eftir að Víkingur laut í gras gegn Breiðabliki fyrr í dag. Lokatölur urðu 4-1 fyrir heimamenn.
„Breiðablik vildi þennan sigur meira en við. Þeir voru grimmari og tilbúnari í að leggja þá vinnu á sig sem þarf og uppskáru eftir því. Þegar það er enginn vilji til að gera neitt þá gerist ekki neitt í spilinu og það háði okkur. Þeir sem byrja leikinn þurfa að leggja meiri vinnu á sig en þeir gerðu hér í dag.“
„Ég tel að spjaldið hafi verið algjörlega rangt. Mér sýndist hann fara með annan fótinn í tæklinguna en ég þarf að sjá þetta betur í sjónvarpinu. Ég hélt líka síðast að Stjörnumaðurinn hefði verið rangur þegar Alan Lowing var rekinn út af en þeir þrættu fyrir það. Svo kom í ljós að ég hafði rétt fyrir mér. Ég vona að ég hafi ekki rétt fyrir mér núna.“
Víkignar hafa fengið flest rauð spjöld allra liða í deildinni eða sex talsins en næstu lið á eftir þeim eru með þrjú rauð. Ólafur vill þó ekki meina að Víkingar séu að spila harkalegar en önnur lið.
„Þú sérð það hér í dag, undir lok leiks, þá er heldur suddaleg tækling hjá Blikum sem verðskuldaði rautt spjald miðað við hitt rauða spjaldið. Ég nenni ekki einu sinni að ræða þetta.“
„Við vorum að bregðast við því að geta ekki rassgat og reyna að klóra í bakkann og það gekk ekki upp.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Athugasemdir