Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. september 2014 17:03
Jón Stefán Jónsson
England: Óvæntur sigur Palace á Everton
Crystal Palace vann óvæntan sigur á Everton
Crystal Palace vann óvæntan sigur á Everton
Mynd: Getty Images
Crystal Palace vann óvæntan sigur á Everton á útivelli í dag 3-2. Ekkert benti til þess fyrstu mínútur leiksins að Palace færi með sigur af hólmi eftir að Lukaku kom heimamönnum yfir á níundu mínútu.

Gestirnir unnu sig hins vegar vel inn í leikinn og rúmlega það og svöruðu með þremur mörkum áður en Leighton Baines minnkaði munin fyrir Everton sjö mínútum fyrir leikslok. Það dugði þó ekki til fyrir heimamenn og fara Palace-menn með öll þrjú stigin heim til London.

Everton 2 - 3 Crystal Palace
1-0 Romelu Lukaku ('9 )
1-1 Mile Jedinak ('30 , víti)
1-2 Fraizer Campbell ('54 )
1-3 Yannick Bolasie ('69 )
2-3 Leighton Baines ('83 , víti)

Athugasemdir
banner
banner
banner