James Vardy, leikmaður Leicester átti frábæran leik í dag gegn Man Utd og var að sjálfsögðu í skýjunum með sigurinn.
Ég fann að um leið og við komumst aftur inn í leikinn að við værum í stuði, stuðningsmennirnir voru stórkostlegir. Við sköpuðum færi og við kláruðum þau.
Við höfðum skoðað vel hversu ógnandi þeir geta verið í sókninni en sáum jafnframt að veikleikar tígulmiðjunnar kristallast í plássi fyrir aftan bakverðina þeirra. Við leituðumst við að nýta okkur þetta pláss.
Ég er mjög stolltur af frammistöðunni og aðal atriðið er að sjálfsögðu að við náðum í þrjú stig. Þetta er algjör draumur en ég ætla ekki að láta þetta gefa mér neinar tálsýnir. Núna ætla ég bara að leggjast í sófann og horfa á City-Chelsea leikinn.
Athugasemdir