Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 21. september 2017 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bilic: Ég vil að Arnautovic geri meira
Mynd: Getty Images
Slaven Bilic, stjóri West Ham, segir að Marko Arnautovic verði að gera enn meira fyrir liðið.

Arnautovic átti sinn besta leik fyrir West Ham í 3-0 sigrinum gegn Bolton í deildabikarnum á þriðjudaginn, en þrátt fyrir flottan leik vill Bilic sjá meira frá Austurríkismanninum.

„Ég hefði getað beðið um meira," sagði Bilic eftir leikinn. „Ég vil að hann geri meira."

„Hann hefur mikil gæði og þetta aukalega sem margir aðrir leikmenn hafa ekki. Ég kann vel við hann sem leikmann, en stundum er hann ánægður með þá fáu hluti sem hann gerir þegar ég veit að hann getur gert miklu meira."

Arnautovic er dýrasti leikmaðurinn í sögu West Ham, en Lundúnaliðið borgaði Stoke 25 milljónir punda fyrir hann í sumar.
Athugasemdir
banner
banner