ÍA á ekki lengur möguleika á því að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni. Það varð ljóst eftir að FH mistókst að vinna Fjölni í Grafarvoginum í dag. Fjölnir vann óvæntan 2-1 sigur.
Skagamenn eru því fallnir þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni.
Skagamenn eru því fallnir þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni.
Liðið hefur aðeins unnið þrjá af tuttugu leikjum sínum í deildinni í sumar, skorað 28 mörk en fengið 41 á sig.
Þetta fornfræga félag hefur 18 sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 2001. Liðið féll úr efstu deild 2013 en komst beint upp aftur. Liðið hafnaði í 7. sæti 2015 en 8. sæti 2016.
Liðið hefur verið við fallsvæðið í allt sumar og hætti Gunnlaugur Jónsson sem þjálfari liðsins fyrir mánuði síðan. Jón Þór Hauksson, aðstoðarmaður Gunnlaugs, tók við stjórnartaumunum.
Ekki er vitað hver muni stýra ÍA í Inkasso-deildinni á næsta tímabili en Jón Þór hefur sjálfur lýst því yfir að hann vilji halda áfram.
Sjá einnig:
Fjölnir 2 - 1 FH
Athugasemdir