Í dag er frestaður leikur spilaður í Pepsi-deild karla. Fjölnir og FH eigast við, en þessi leikur átti upphaflega að vera í 15. umferðinni.
Honum var hins vegar frestað þar sem FH þurfti að spila Evrópuleiki.
Honum var hins vegar frestað þar sem FH þurfti að spila Evrópuleiki.
Leikurinn verður spilaður í dag, en hann er mjög mikilvægur fyrir bæði gestina úr Hafnarfirði og heimamenn í Fjölni.
Fjölnir þarf nauðsynlega á þremur punktum að halda til að létta aðeins á pressunni í fallbaráttunni, en FH-ingar geta með sigri bókað sæti sitt í Evrópukeppni fyrir næsta tímabil.
Leikurinn hefst 16:30 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Hann er einnig að sjálfsögðu í beinni textalýsingu á Fótbolta.net
fimmtudagur 21. september
Pepsi-deild karla
16:30 Fjölnir-FH (Extra völlurinn - Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir