Joe Ledley, fyrrum miðjumaður Crystal Palace, hefur skrifað undir samning við Derby County í Championship-deildinni.
Samningurinn sem hann skrifaði undir rennur út í janúar.
Samningurinn sem hann skrifaði undir rennur út í janúar.
Hinn þrítugi Ledley yfirgaf Crystal Palace í sumar eftir þriggja ára dvöl hjá félaginu. Hann var einn þeirra leikmanna sem félagið ákvað að endursemja ekki við eftir síðasta tímabil.
Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Derby á móti stjóralausu liði Birmingham á laugardaginn.
Derby er í augnablikinu í 15. sæti Championship-deildarinnar, en liðið stefnir auðvitað hærra en það.
Athugasemdir