Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. september 2017 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Meiðsli Gündogan ekki alvarleg - Gæti verið með gegn Chelsea
Mynd: Getty Images
Ilkay Gündogan, miðjumaður Manchester City, haltraði af velli þegar Man City sló West Brom úr deildabikarnum á miðvikudaginn.

Gündogan hefur verið mikið frá vegna meiðsla og var leikurinn gegn West Brom annar byrjunarliðsleikurinn hans á tólf mánuðum.

Í fyrstu var óttast um að meiðsli miðjumannsins gætu verið alvarleg en nú er komið í ljós að svo er ekki.

Gündogan gæti náð sér að fullu á rúmri viku og gæti því verið klár í slaginn fyrir stórleikinn gegn Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner