Paul Pogba hefur verið sagt að taka sér stutt frí áður en hann hefur endurhæfingu vegna meiðsla. Miðjumaðurinn franski meiddist í Meistaradeildarleik Manchester United gegn Basel og gæti verið frá í sex vikur.
Pogba býður eftir niðurstöðu úr annarri myndatöku sem greinir meiðslin enn betur. Þegar niðurstaðan kemur verður hann sendur í stutt frí.
Hann þarf smá tíma til að jafna sig áður en endurhæfing getur hafist. Jose Mourinho vill að hann fari erlendis í frí í landsleikjahléinu og slaki á.
Pogba hefur verið í góðum gír á Old Trafford þrátt fyrir meiðslin eins og sést á þessu myndbandi sem hann setti á Instagram.
Athugasemdir