Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 21. september 2017 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Nokkrir tímar lausir í Risanum og Dvergnum
Frá Dvergnum.
Frá Dvergnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru nokkrir tímar lausir í Risanum og Dvergnum knatthúsum í Kaplakrika til útleigu í vetur.

Risinn er yfirbyggt knatthús á stærð við hálfan knattspyrnuvöll 66m*44m. Húsið er ekki upphitað en er klætt með dúki og því mjög gott að stunda æfingar þar inni í skjóli. Hægt er að skipta Risanum í tvennt og leigja þá hálfan völl.

Dvergurinn er nýtt yfirbyggt knatthús, 51m*25m á stærð. Húsið er klætt með tvöföldum dúk og upphitað. Í Dvergnum er nýtt FIFA 2 star gervigras. Stærð húsanna hentar vel fyrir æfingar, fyrirtækja - og vinahópabolta.

Í boði er að leigja morgun -, hádegis - og kvöldtíma í húsunum.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Axel í gegnum [email protected] og hér http://fh.is/2017/09/lausir-utleigutimar-risanum-og-dvergnum/
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner