Paulinho segir að það sé ekki aðalmálið hjá sér að þagga niður í gagnrýnisröddum, en það var svo sannarlega nóg af þeim þegar Barcelona 40 milljónir evra fyrir hann í sumar.
Segja má að hann hafi þaggað niður í gagnrýnisröddunum, svona að einhverju leyti, með flottum leikjum að undanförnu.
Segja má að hann hafi þaggað niður í gagnrýnisröddunum, svona að einhverju leyti, með flottum leikjum að undanförnu.
Hann hefur skorað í síðustu tveimur leikjum Barcelona, þar á meðal sigurmark í 2-1 sigri á Getafe um síðustu helgi.
„Ég þarf ekki að sanna neitt fyrir fólkinu sem efaðist um mig, bara fyrir liðsfélögum mínum og fyrir Barcelona," sagði Paulinho.
„Það er best að gera það á vellinum, með mörkum og sigrum. En það er betra að vinna leiki en að skora mörk."
Athugasemdir