Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, hefur staðfest að Gareth Bale mun missa af leik liðsins gegn Barcelona á laugardag vegna meiðsla.
Walesverjinn verður ekki með þegar Evrópumeistararnir heimsækja Liverpool annað kvöld og verður hann heldur ekki til í slaginn gegn stærstu erkifjendunum um helgina.
Walesverjinn verður ekki með þegar Evrópumeistararnir heimsækja Liverpool annað kvöld og verður hann heldur ekki til í slaginn gegn stærstu erkifjendunum um helgina.
,,Bale meiddist á æfingu á föstudag, svo hann mun ekki spila á morgun (gegn Liverpool) eða á laugardag," sagði Ancelotti á blaðamannafundi.
Real Madrid og Liverpool mætast á Anfield annað kvöld klukkan 18:45.
Athugasemdir