Heimild: The Guardian
Diego Costa missir af leik Chelsea gegn Maribor þegar liðin mætast í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Um er að ræða annan leikinn í röð sem Costa missir af, en einnig er óvíst hvort hann verði klár fyrir stórleik Chelsea og Manchester United um helgina.
Þá vantar miðjumennina John Obi Mikel og Ramires vegna meiðsla. Andre Schurrle er einnig meiddur og verður hann því fjarri góðu gamni í kvöld.
Chelsea er á toppi G-riðils fyrir leikinn með fjögur stig úr tveimur leikjum.
Athugasemdir