Nýliðar Leiknis í Pepsi-deildinni hafa fengið sóknarmanninn Kolbein Kárason sem skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í kvöld. Kolbeinn kemur frá Val en hann er ekki sáttur við lítinn spiltíma undanfarin tvö ár.
„Aðdragandinn var frekar snöggur og Leiknir var í raun eina félagið sem kom til greina. Freyr og Davíð (þjálfarar Leiknis) höfðu samband og ég fór á fund með þeim. Allt hljómaði mjög vel," sagði Kolbeinn sem þekkir Frey Alexandersson, annan þjálfara Leiknis, vel frá því að hann spilaði undir honum hjá Val.
„Markmið mín hjá Leikni eru að fá að spila mikið og hafa gaman að því að spila fótbolta. Vonandi set ég einhver mörk. Ég og Freyr áttum mjög gott samband í Val og ég er spenntur fyrir því að vinna með honum aftur."
Leiknir spilar í fyrsta sinn í sögu félagsins í efstu deild á næsta ári.
„Það er spennandi að takast á við komandi verkefni. Fyrsta markmið hlýtur að vera að halda sér í deildinni."
Kolbeinn er fyrrum hnefaleikakappi og hefur fengið viðurnefnið „boxarinn" í íslenskum fjölmiðlum. Hann er þó ekki hrifinn af því viðurnefni.
„Mér finnst það alveg vonlaust viðurnefni og það má alveg kötta það út. Það er búið, ég er fótboltamaður í dag," sagði Kolbeinn brosandi að lokum en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir