Óvíst hvort Eyjólfur og Tómas Ingi haldi áfram
Kristinn Rúnar Jónsson er að hætta með U19 ára landslið karla eftir átta ára starf.
Kristinn Rúnar staðfesti við Fótbolta.net í dag að hann hafi átt í viðræðum við Fram og líklegt er að gengið verði frá samningum síðar í dag.
Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir ekki ljóst hver eftirmaður Kristins verður.

,,Það eru nokkur nöfn sem hafa komið upp og þetta er í skoðun," sagði Þórir við Fótbolta.net í dag.
Samningur Eyjólfs Sverrissonar og Tómasar Inga Tómassonar með U21 árs landsliðið rennur út um áramótin en að sögn Þóris eru samningamálin þar einnig í skoðun og ekki ljóst hvort þeir muni halda áfram eða ekki.
,,Það er yfirleitt tekin ákvörðun um það á nýju ári. Við höldum áfram fram að áramótum og svo kemur í ljós hvort við höldum áfram," sagði Tómas Ingi um samningamálin í viðtali við Fótbolta.net eftir að liðið datt út gegn Dönum á útivallarmarki í umspili um sæti á EM.
Athugasemdir