Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 21. október 2014 22:18
Alexander Freyr Tamimi
Þjálfari Roma: Algerlega mér að kenna
Rudi Garcia tók á sig tapið.
Rudi Garcia tók á sig tapið.
Mynd: Getty Images
Rudi Garcia, þjálfari Roma, segir að niðurlægjandi 7-1 tap liðsins gegn Bayern Munchen á heimavelli sé algerlega sér að kenna.

Roma byrjaði leikinn afleitlega og var 5-0 undir í hálfleik og segir Garcia að nálgun sín hafi einfaldlega verið röng.

,,Ég er fyrst og fremst sá sem gerði mistök, þetta er ekki leikmönnunum að kenna. Það er algerlega mér að kenna hvernig við mættum í fyrri hálfleikinn," sagði Garcia eftir leikinn.

,,Þetta var röng leikáætlun. Við hefðum átt að vera lokaðri og reyna að sækja á þá í skyndisóknum. Þetta var fremur taktískt hrun heldur en andlegt."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner