Axel Freyr Harðarson, knattspyrnumaður úr Fram, er þessa dagana hjá belgíska úrvalsdeildarliðinu Lokeren og verður þar til reynslu í vikutíma. Þar æfir hann með varaliði félagsins.
Hann er miðjumaður að upplagi og var fastamaður í A-liði 2. flokks Fram í sumar á sínu fyrsta ári með flokknum. Þá hefur Axel Freyr æft alla jafnan með meistaraflokki Fram og verið í leikmannahópnum alls fimm sinnum á nýliðnu tímabili.
Hann á að baki einn leik með Fram í Inkasso deildinni í sumar.
Axel Freyr verður 17 ára n.k. laugardag og fagnar þeim tímamótum við knattspyrnuæfingar í Belgíu við topp aðstæður.
Athugasemdir