Vinstri bakvörðurinn Axel Kári Vignisson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍR á nýjan leik.
Axel Kári spilaði með Keflavík í Inkasso-deildinni í sumar.
Axel Kári spilaði með Keflavík í Inkasso-deildinni í sumar.
„Axel er uppalinn ÍR-ingur og því er sérstaklega ánægjulegt að sjá hann aftur á heimaslóðum," segir á Facebook síðu ÍR.
Axel Kári er 26 ára gamall en hann byrjaði að spila með meistaraflokki ÍR árið 2007.
Fyrir tímabilið 2013 fór Axel í Víking R. en hann spilaði einnig með HK 2014 og 2015.
Athugasemdir