Moses Odubajo, bakvörður Hull, er með brotna hnéskel og verður frá í hálft ár.
Hinn 23 ára gamli Odubajo er nýkominn til baka úr sex mánaða meiðslum og er þetta því gríðarlegt áfall.
„Félagið getur staðfest að Moses Odubajo verður frá í sex mánuði vegna hnémeiðsla."
„Hann hafði gert frábærlega að koma til baka úr erfiðum meiðslum en núna er hann meiddur aftur. Hann þarf aðgerð en við óskum honum alls hins besta," stóð í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins.
Athugasemdir