Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 21. október 2016 17:30
Magnús Már Einarsson
Gunnar Gunnarsson á förum frá Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnar og miðjumaðurinn Gunnar Gunnarsson er á förum frá Val en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

Samningur Gunnars er útrunninn og hann verður ekki áfram hjá Val.

Gunnar var í láni hjá Haukum í sumar en þar spilaði hann sextán leiki og skoraði eitt mark.

Í fyrra spilaði Gunnar átta leiki í Pepsi-deildinni með Val og árið 2014 spilaði hann tíu leiki.

Þar áður lék hinn 23 ára gamli Gunnar með Gróttu og Hamri í 2. deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner