KSÍ hefur komist að samkomulagi við Knattspyrnusamband Írlands um vináttulandsleik hjá A landsliðum karla. Leikurinn fer fram 28. mars 2017 á Aviva leikvangnum í Dublin. Aviva leikvangurinn er glæsilegt mannvirki sem gekk í gegnum miklar endurbætur í lok síðasta áratugar. Leikvangurinn tekur 51.700 áhorfendur.
Ísland mætir Kosovo í undankeppni HM þann 24. mars og fer síðan til Írlands.
Karlalandslið Íslands og Írlands hafa tíu sinnum mæst á knattspyrnuvellinum og hefur Írland unnið sjö viðureignir og þrjár hafa endað með jafntefli, markatalan er 9-21 írum í vil.
Seinasti landsleikur þjóðanna var á Laugardalsvelli í september 1997, í undankeppni HM 1998 og endaði 2-4 fyrir gestina
Írar eru í 33. sæti á heimslista FIFA en þeir duttu út í riðlakeppninni á EM í sumar.
Athugasemdir