Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 21. október 2016 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Leikmaður Manchester City: Við söknum þess að vinna
Willy Caballero.
Willy Caballero.
Mynd: Getty Images
Willy Caballero, markmaður Manchester City, segir að liðið sakni þess að vinna fótboltaleiki eftir 4-0 tap gegn Barcelona á miðvikudag.

Þetta var fjórði leikur City í röð án sigurs en síðasti sigurleikurinn kom gegn Swansea í lok september.

Caballero kom inná sem varamaður í seinni hálfleik gegn Barcelona þar sem Claudio Bravo, aðalmarkmaður liðsins, fékk að líta rautt spjald fyrir að verja boltann með hendi utan teigs.

„Það er gríðarlega mikilvægt að við komum til baka og vinnum. Pep Guardiola mun ýta okkur saman og peppa okkur vel."

„Við verðum að vinna næsta leik því við söknum þess að vinna. Við komum mjög tilbúnir í leikinn gegn Southampton á sunnudag," sagði Caballero.
Athugasemdir
banner
banner
banner