Mauricio Pochettino, þjálfari Tottenham, er staðráðinn í að sjá lærisveina sína vinna Bournemouth á laugardaginn en liðið fer á topp ensku úrvalsdeildarinnar með sigri.
Leikurinn er fyrsti leikur helgarinnar og fer Tottenham yfir Manchester City og Arsenal með sigri og í toppsætið, í bili, hið minnsta.
Argentínumaðurinn segir þetta vera gullið tækifæri til að senda andstæðingum sínum skilaboð.
„Við getum komist á toppinn með sigri og það er ekki hægt að finna betri ástæðu til að spila vel og vinna leikinn."
„Við erum búnir að æfa meira en venjulega í vikunni og það er mikil einbeitting innan hópsins. VIð erum staðráðnir í að taka toppsætið," sagði Pochettino.
Athugasemdir