Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. október 2016 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Betis með dramatískan sigur á Osasuna
Gutierrez setti sigurmark Betis í uppbótartíma
Gutierrez setti sigurmark Betis í uppbótartíma
Mynd: Getty Images
Osasuna 1 - 2 Betis
0-1 Joaquin ('19 )
1-1 Roberto Torres ('48 )
1-2 Felipe Gutierrez ('90 )
Rautt spjald: Emmanuel Riviere, Osasuna ('87)

Það var rólegt yfir spænska boltanum í kvöld. Það var einn leikur spilaður og þar mættust Osasuna og Betis á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Þetta var fyrsti leikurinn í níundu umferðinni sem rúllar um helgina.

Bæði lið voru í neðri hlutanum fyrir leikinn og það munaði aðeins tveimur stigum; Osasuna var með sex stig á meðan Betis var með átta. Það mátti því búast við hörkuleik í kvöld og sú varð raunin.

Hinn reynslumikil Joaquin kom Betis yfir á 19. mínútu, en í upphafi seinni hálfleiks náði Roberto Torres að jafna fyrir heimamenn í Osasuna.

Það virtist lengi vel stefna í jafntefli, en þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma dró til tíðinda. Einn af varamönnum Osasuna, Emmanuel Riviere, lét reka sig af velli og í kjölfarið kom sigurmark Betis.

Lokatölur því 2-1 og dramatískur sigur Betis staðreynd. Osasuna er í fallsæti með 6 stig eftir níu leiki, en eftir þennan sigur í kvöld er Betis komið upp í efri hlutann með 11 stig.

Stöðutöfluna í deildinni má sjá hér að neðan í heild sinni, en það gæti tekið smá tíma fyrir hana að uppfæra sig.
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 23 14 5 4 43 20 +23 47
2 FK Krasnodar 24 12 8 4 36 23 +13 44
3 Dinamo 23 10 8 5 36 31 +5 38
4 CSKA 23 9 10 4 43 31 +12 37
5 Lokomotiv 23 9 10 4 38 31 +7 37
6 Kr. Sovetov 23 10 6 7 41 33 +8 36
7 Spartak 23 10 5 8 29 28 +1 35
8 Rostov 23 9 7 7 35 33 +2 34
9 Rubin 23 9 5 9 20 29 -9 32
10 Nizhnyi Novgorod 23 8 4 11 21 26 -5 28
11 Fakel 24 6 9 9 19 25 -6 27
12 Orenburg 23 6 8 9 27 30 -3 26
13 Ural 23 6 5 12 22 36 -14 23
14 Baltica 23 5 5 13 21 27 -6 20
15 Akhmat Groznyi 23 5 5 13 21 36 -15 20
16 Sochi 23 4 6 13 24 37 -13 18
Athugasemdir
banner
banner
banner