Walter Mazzarri, þjálfari Watford, segir Jose Holebas og Etienne Capoue að halda áfram að rífast en segir þá jafnframt vera góða vini.
Holebas skoraði eina markið í 1-0 sigri Watford á Middlesbrough á sunnudag en hann og Capoue hnakkrifust í leikslok á meðan liðsfélagar þeirra fögnuðu.
Mazzari var lítið að stressa sig á hlutunum og segir hann rifrildi geta gert sína menn betri.
„Þeir eru oftast saman í liði á æfingum og tala mikið saman. Þeir eru stanslaust að reyna að bæta sig og hvorn annan."
„Þeir tala mikið um í hvaða stöðu hinn aðilinn á að spila í og hvort hann eigi að fara framar eða aftar á völlinn. Þeir eru alltaf að tala saman og þeir eru góðir vinir," sagði Mazzarri.
Athugasemdir