Belgíski framherjinn Michy Batshuayi stóð sig frábærlega þegar hann kom inn á sem varmaður í 4-2 sigri Chelsea á Watford í dag.
Batshuayi blés nýju lífi í sóknarleik Chelsea og skoraði tvö mörk.
Batshuayi blés nýju lífi í sóknarleik Chelsea og skoraði tvö mörk.
„Það er erfitt að byrja alltaf á bekknum, en einbeiti mér að því á hverjum degi að leggja hart að mér og æfa vel," sagði Batshuayi þegar heyrt var í honum eftir sigur Chelsea í dag.
Hann var ánægður með stigin þrjú eins og gefur að skilja.
„Ég er mjög ánægður að við skyldum taka þrjú stig úr þessum leik þar sem við vorum komnir í erfiða stöðu."
Athugasemdir