Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. október 2017 13:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndir: Conte henti sér á áhorfendur í fremstu röð
Mynd: Getty Images
Antonio Conte er ástríðufullur knattspyrnustjóri, það vita allir sem fylgjast með ítölskum eða enskum fótbolta.

Conte varð hinn glaðasti þegar Chelsea skoraði þriðja mark sitt í 4-2 sigrinum á Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Chelsea hafði lent 2-1 undir, en þeir sýndu karakter, komu til baka og unnu að lokum 4-2. Hægt er að skrifa sigurinn á skiptingu sem Conte tók þegar hann setti Michy Batshuayi inn í stað Alvaro Morata. Batshuayi breytti leiknum og skoraði tvö mörk.

Þegar þriðja mark Chelsea kom ákvað Conte að henda sér áhorfendaskarann, í fremstu röð.

Myndir og myndband af þessu má sjá hér að neðan.







Athugasemdir
banner